HILIÓ

Muna að kvitta ;)

10.01.2007 21:24:19 / hilio

Ég er fluttur og hættur hér !!!

Já það er rétt, nýja slóðin er www.hilio.blog.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 13:55:38 / hilio

Gleðileg jól, gleðilegt ár og allt það !!

Jæja er ekki kominn tími á að segja nokkur orð. Þá er komið nýtt ár og ég er kominn suður aftur, einn ljós punktur við það allt saman, hef Hröbbu hjá mér alla daga :) Annars er bara allt gott að frétta, jólin voru fín fyrir utan það að ég gat ekki unnið neitt svaka mikið þar sem ég var kviðslitinn og kenndi ég mér meins í því og var stoppaður af í vinnu. Það á nú allt eftir að lagast þar sem ég var í aðgerð þann 4 jan. Ligg bara heima og horfi á TV allann daginn og ét verkjalif, en maður verður jú að taka því rólega svo að maður verði kominn fyrr á ról. Má nebbla ekkert vera að þessu, nóg að gera sko.

En jæja, ég nenni ekki að skrifa meira, ætla að fara að fá mér eitthvað í svanginn.

Adios :haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 19:52:21 / hilio

That´s the shit !

Hérna erum við að tala saman 75 hestöfl í sleðann :lol:

 

Svona verður sko pottþétt í græjunni minni sem ég verð reyndar ekki kominn á fyrr en eftir ár 8|

Talandi um það, en bíllinn minn er kominn í lag og það er bara stuð. Gaman að sjá hvað þessi kassi á eftir að endast lengi. Stefnan er allavega sett fram á sumar:haha:

Rakst líka á þennann helvíti slappa MOD 8|




Bara sjúkt tæki :klikk:

En jæja bið að heilsa í bili, kíp it ríl fuckers 8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 18:15:37 / hilio

Loksins Loksins :)

Þá erum við loksins farin að veiða hval aftur. Sjálfur er ég himinnlifandi yfir því hefðum átt að verbyrjuð á þessu aftur fyrir lifandis löngu. En eins og margir vita þá eru nú ekki allir á eitt sáttir við þá ákvörðun. Eins og t.d. Bandaríkjamenn sem gagnrýnt hafa okkur harðlega fyrir gjörðir okkar. Þeim væri nú bara hollast að halda kjafti, því að mínu mati þá hafa þeir engann veginn efni á því að hafa skoðun á þessu máli þar sem þeir veiða sjálfir hval, + það að þeir eru jú á mannaveiðum í hinum ýmsu heimsálfum ! Svo eru það nú blessuðu nátturuverndarsinnarnir sem allt þykjast vita og halda bókstaflega að allt fari til helvítis útaf þessu, að þetta séu dýr í útrýmingarhættu og blablabla. Hvað er að ? Það eru ekki nema rúmar 46.000 hrefnur við strendur landsins og ekki nema tæpar 29.000 langreyður. Er ekki í lagi ? Það er bara allt í góðu að grisja þetta aðeins svo þessi kvikindi sem ég hef bara slæma reynslu af gangi ekki af öðrum nytjastofnum dauðum, því þetta étur jú ekkert lítið af fiski og svifi.

Þannig að ef einhverjir "kanar" eða "nátturverndarsinnar" eru að lesa, þá hef ég eftirfarandi að bjóða þeim !

 

En jæja, ef við snúum okkur að öðru. Björgun 2006 var haldin um helgina, og komu félagar mínir að austan úr Bjsv. Ársól suður til ráðstefnunnar sem var mjög skemmtileg, þó hefði maður jú viljað ná fleiri fyrirlestrum.

Svo er ég nú loksins farinn að sjá fram á það að bíllinn minn fari í gang í vikunni þar sem ég er að verða kominn að niðurstöðu um hvað gera skal í þessu máli, er ekkert búinn að hugsa neitt voða hratt í þessu máli en það er nú allt í lagi, búinn að spara mikið bensín á því.

Hér eru svo niðurstöðurnar úr síðustu skoðannakönnun.



Svo er ný könnun á kantinum, endilega látið ljós ykkar skína.

Þá hef ég ekki meira fram að færa í bili.

Kíp it ríl hómís 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 19:59:08 / hilio

Fokk sjitt hvað er í gangi ??

Heyrðu, ég bara er svona að láta vit af því að ég er á lífi ! Það er bara svo mikið að gera að ég hef ekkert haft mikinn tíma í að blogga. Reyni samt að fara að henda inn færslu innan tíðar. Annars er bara allt mjög fínt að frétta, voða hamingjusamur ungur maður og allt það fyrir utann einn hlut ! Jú þannig er mál með vexti að ég braut fyrsta gírinn í bílnum hjá mér um daginn :^)

Frekar mikið bögg, en sterkari og sverari gír er á leiðinni. Meira um það síðar.

Kíp it ríl hómís 8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 21:10:21 / hilio

Búinn að fá mér bíl :)

Þá er maður kominn á bíl, sá hann á netinu og ég féll alveg fyrir honum, sló til og fór og sótti hann á Akureyri á föstudaginn. Þannig að ég get ekki sagt annað en að ég sé  sáttur með að bílaviðskiptin með þann sem ég ætlaði að kaupa fysrst gengu ekki upp því bíllinn sem ég er á núna er mikið flottari :)  Hvað finnst ykkur ?

Hér er bíllinn, sá sem ég ætlaði að kaupa fyrst er svo neðar:


» 21 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 13:36:40 / hilio

Allt að gerast !

Þá eru prófin búin, en ég kláraði síðastliðinn miðvikudag. Þá tók við almennt ölþamb, og kíktum við félagarnir á Kringlukránna þar sem við horfðum á einn leik, fengum okkur að borða og drukkum svo meir bjór. Sumir voru í verra ástandi en aðrir og þurftu að kíkja á netið daginn eftir til að ath. hvernig leikurinn hefði farið. Ég var nú frekar stabíll og var farinn "heim" kl 23:00. Áfimmtudaignn kíkti ég svo aðeins á Victor, en endaði aðeins í því vegna þess að Þröstur 3000 helti í mig eins og enginn væri morgundagurinn. Á föstudaginn var ég svo á fullu allann daginn og kíktum við svo aðeins í bæinn um kvöldið. Í gær, Laugardag, gerði ég svosem ekki mikið, kíkti á kvartmílu, horfði á júróvisión og fór það eins og ég vonaði. Svo var bara tjill í gærkvöldi yfir DVD. Ætlaði svo að keyra austur í dag en það vill svo skemmtilega til að ég er að fara að versla mér bíl og ég fæ hann ekki fyrr en á morgun ! Og það er eins gott að það verði ekki einhver heimskur snjór á leiðinni austur, ætla nebbla að fara norðurleiðina.

Hérna er bíllinn :)


SUBARU IMPREZA GT

En þangað til næst, kíp it ríl 8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 18:17:46 / hilio

Já.....

 .....þá er páskafríið búið og kominn í bæinn aftur, frekar leiðinlega fljótt að líða, en ég get samt huggað mig við það að ég verð farinn heim aftur eftir mánuð, jebb, er búinn 16 maí. Þá brunar maður aftur heim í heiðardalinn :D Annars var páskafríið bara fínt, brallaði allann andskotann, t.d. var sleðast þokkalega mikið, farið á skytterí og guð má vita hvað, svo rann líka vel gott magn af gyllta niður :lol:

En jæja, ég nenni ekki að skrifa meira í bili, þangað til næst;

Kíp it ríl hómís 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 18:37:04 / hilio

Dettur ekkert sniðugt í hug !!!

En já, það var sko heldur betur tekið á því um helgina, árshátíð hjá skólanum á föstudaginn og svo austfirðingaball á laugardeginum.

Föstudagurinn...

...byrjaði jú þannig að maður mætti í skólann um 8 og var í honum fram að hádegi, þá var nú heldur betur farið heim og gert sig kláran fyrir djammið. Var svo kominn heim til Silla félaga míns rétt fyrir 3 og voru menn þá svona aðeins að verða rakir. :lol: Þannig að það var náttla ekkert um annað að ræða en að skella í sig, og vorum við orðnir vel rakir þegar rúturnar svo skröngluðus með okkur í bláa lónið þar sem árshátíðinn var haldin. Þar var svo etið og drukkið og svo drukkið enn meira þangað til við fórum í bæinn og drukkum enn meira.

Laugardagurinn...

...svaf til að verða þrjú, skrönglaðist þá á lappir og dreif mig í ríkið, og kíkti að svo búnu til Kjartans og þar skellti ég í mig tveimur afrétturum yfir leik, fór svo heim, græaði mig fyrir ballið, aftur til Kjartans og sagan endurtók sig ! ég varð semst fullur enda var ég alveg ónýtur á sunnudaginn !  Var svo veikur ofan á allt í gær :^)

En jæja, ég var víst búinn að lofa betri mynd af flúrinu þegar það væri klárt, og hér er þetta:


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 20:28:52 / hilio

Nýtt tattoo :)

Jæja, þá er maður búinn að fá sér nýtt tattoo, alveg hrikalega sáttur með það, er allt að flagna núna þannig að það fer að koma svona endanleg mynd á þetta.

Hér eru tvær myndir, en ekki þær bestu kanski, soldið svart líka enda ekki orðið sólarhrings gamalt þarna, mikið marinn líka.


» 12 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 22:47:46 / hilio

Sú fullkomna :)

Hehehehe, ég rakst á þetta á annari síðu og varð bara að fá þetta lánað til að deila þessu með ykkur :)

 Sú fullkomna?

* Mér leiðist. Komdu og hjálpaðu mér að raka hana.

* Ættir þú ekki að vera á barnum með félögunum ?

* Frábært hvernig þú prumpar. Gerðu það aftur !

* Ég hef ákveðið að hætta að klæða mig heima fyrir.

* Þú ert svo kynþokkafullur svona timbraður.

* Mig langar frekar að horfa á boltann með þér og fá mér bjór en að fara að versla.

* Eigum við ekki að gerast áskrifendur að Hustler ?

* Langar þig að sjá mig fara niður á vinkonur mínar ?

* Eigum við að koma saman í Kringluna til að skoða undirföt?

* Ég verði úti að mála húsið.

* Ég elska það þegar þú leikur golf á sunnudögum. Verst að þú getir það ekki líka á laugardögum

* Elskan. Dóttir nágrannans er aftur úti í sólbaði. Komdu og sjáðu.

* Ég veit að það er mikið þrengra þarna baka til en viltu ekki reyna aftur !

* Nei, nei. Ég skal taka bílinn og skipta á olíunni.

* Móðir þín er mun skárri en mín.

* Gerðu mér greiða. Gleymdu þessum asnalega Valentínusargjöfum.

* Ég skil það fullkomlega... Brúðkaupsafmælið er á hverju ári og
   þú ferð á veiðar með félögunum sem er í raun yndislegur streitubani.

* Æ, láttu ekki svona. Tökum eina bláa, fáum okkur nokkra bjóra
   og ég fæ hana Siggu vinkonu yfir í þríhyrning !

* Æ, ekki aftur í Kringluna. Förum frekar og kíkjum á nýja nektarstaðinn sem var að opna.

* Heyrðu nú. Ég þéna nægilega mikið fyrir okkur bæði.
   Hættu bara að vinna og sinntu mér betur...

* Þú þarft þinn svefn kálfurinn þinn. Hættu nú og ég sé um næturgjafirnar.

* Ó, guð. Ef ég fæ ekki að sjúga þig núna á ég eftir að springa.

* Ég skráði mig í jógatíma svo ég geti náð fótunum aftur fyrir bak... bara fyrir þig !


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 19:29:39 / hilio

Long time no see !

Jæja er ekki kominn tími til að segja fáein orð ? Allavega þá er ég á lífi og allt bara þetta fína að frétta af kjellinum ;) Verðið að afsaka hvað ég er búinn að vera ógeðis latur við að blogga enda hef ég svosem ekki haft frá miklu að segja. Er loksins að fara að ná í hjólið mitt úr viðgerð í kvöld þannig að ég get þá loksins farið að einbeita mér að því að fara að selja það. Ætla svo jafnvel að reyna að fara að skoða einn bíl í kveld ef að ég verð í stuði.

 

Helgin var viðburðarlítil, var að vinna alla helgina, ætlaði reyndar að vera í fríi en mar er svo ómissandi að það var víst ekki hægt að gefa mér frí :haha: Bróðir kom í bæinn yfir helgina og kíkti aðeins á menninguna og kíktum við meðal annars á eitt MOD kvikindi á laugardeginum og svo á Porche sýningu og var það bara helvíti fínt. Verð sko að eignast Porshe einn daginn !!!

 

Svo fer nú að líða að páskum og reikna ég með að vera að vinna alla páskana, en ætla nú samt að reyna að jeppast eitthvað uppá hálendið og einnig að sleðast eitthvað í heiðinni ef að bróðir lánar mér sleðann eins og einn dag, en hann er svo mikill auðlingur að það hefur ekki verið vandamál hingað til. Svo er maður orðinn svo skemmdur að manni er farið að hlakka til sumarsins, en jú, þá fer ég austur að vinna og stunda einhverja vitleysu, en það er jú framkvæmt nóg af henni fyrir austan á sumrin og er það líka bara snilld, og má nefna hápunkt síðasta sumars “OPERATION ME” sem að fór úr böndunum, en þvílíka og aðra eins snilld hefur ekki verið reynt að framkvæma áður svo að ég viti. En þar sem þessi aðgerð mislukkaðist þá verður þetta reynt aftur í sumar og þá verður þetta sko skipulagt í þaula, hehehehehe. Það verður sko bara gaman, verð líka ekki í hvítri peysu aftur eins og síðast, það er ekki að virka sko, soldið skítsælt !!! Varð svo reyndar fyrir miklum vonbrigðum í janúar síðastliðnum þegar að ég fór á þorrablótið, því það var ekki minnst einu orði á þetta, en jú leikurinn var nú til þess gerður að vera tekinn fyrir þar.

 

En þess má einnig til gamans geta að mynd frá þessari aðgerð endaði í öðru sæti í myndasamkeppni símans síðasta sumar, heheh !

Hér er myndin:

 

En jæja, það er víst best að fara að fá sér eitthvað að borða, mar stækkar víst ekkert öðruvísi, en ég ætla jú að reyna að koma mér yfir 90 kílóin fyrir sumarið

 

En þetta er orðið gott í bili, kíp it ríl hómís 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.02.2006 15:39:07 / hilio

Skrall í kvöld ;)

Þá er maður loksins í fríi og ætla ég að notfæra mér það og kíkja í smá djamm ! Stefna er sett á NASA en þar er Skímó í kvöld. Var að vinna í gær og var vægast sagt ekkert um að vera í bænum í gær og hefur ekki verið svona rólegt á Hverfis síðan að ég byrjaði þar.

Annars er ekkert að frétta, bara þetta sama, var að koma ofan úr skóla en hinn árlegi Skrúfudagur er í dag. Reyni svo að koma með einhverja sveitta sögu frá djamminu þegar fram líða stundir ;)

Adiós ;)

» 13 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 18:18:49 / hilio

Tíminn líður hratt.................

Já shit maur, tíminn gusast áfram,  enn ein helgin frmaundan og það þýðir aðeins eitt, vinna á Hverfis ;) annars er ég bara í góðu chilli, sit hér við tölvuna og drekk bjór og reyni að láta mér detta eitthvað til hugar til að segja. Annars er voð lítið að frétta, geri ekki rassgat nema að skólast, vinna og lyfta. Afrekaði það reyndar að fara 2 sinnum í bíó í síðustu viku, allt að gerast. En hæerna ég nenni ekki að skrifa neitt meira, þyrfti eiginlega að leggja mig þar sem ég lenti á skrallinu í gær, sofnaði meira að segja í tíma áðann fyrir framan tölvu hahahahaha :lol:

En þangað til næst:

Kíp it ríl hómís 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 18:24:09 / hilio

Fokking drazl !!!!!!!

 

4 störf sem ég hef starfað við um ævina:

  • Síldarvinnslan (sjómennska)

  • Eskja (sjómennska)

  • Festi (sjómennska)

  • Hekla (vélvirki)

4 myndir sem ég get horft á aftur og aftur:

  • Sódóma

  • Djöflaeyjan

  • Nýtt líf

  • Dalalíf

4 staðir sem ég hef búið á:

  • Reyðarfjörður

  • Akureyri

  • Reykjavík

  • Atlantshafið

4 sjónvarpsþættir sem ég fíla:

  • Nip tuck

  • 24

  • 48 hours

  • Kompás

4 staðir sem ég hef farið í frí:

  • Mallorca

  • Benidorm

  • That´s it !

4 heimasíður sem ég heimsæki daglega:

  • lexi.is

  • galfyr.is

  • kvartmila.is

  • f4x4.is

4 uppáhalds matartegundir:

  • Kjúklingur

  • Gæs

  • Rjúpa

  • Hreindýr

4 staðir sem ég vildi heldur vera á:

  • Alaska (nóg af snjó)

  • Thailnad

  • Kólumbía

  • Úti í geimnum

4 hlutir sem ég hlakka til:

  • Að klára skólann

  • Verða vel stæður

  • Stútmassaður

  • Vel tanaður

4 aðrir bloggarar sem ég ætla að klukka:

  • Ingi Lár

  • Berglind Ösp

  • Eva Dögg

  • Siggi WD 40

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3